Spádómur á ekki uppruna sinn hjá mönnum heldur koma þeir frá Guði. Biblían segir: 2Pt 1:21 Því að aldrei var nokkur spádómur borinn fram að vilja manns, heldur töluðu menn orð frá Guði, knúðir af heilögum anda.
Spádómar segja okkur nákvæmlega hvað muni gerast í framtíðinni. Biblían segir: Jes 42:9 Sjá, hinir fyrri hlutir eru fram komnir, en nú boða ég nýja hluti og læt yður heyra þá áður en fyrir þeim vottar.